VERKUN Á RJÚPU

Silli kokkur er kannski sá aðili sem hefur nýtt villibráð og sýnt meðhöndlun hennar áhuga. Hann hefur sett myndbönd á youtube þar sem hann kennir aðgerð og nýtingu bráðar. Myndböndin birtast hér með hans leyfi og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.

https://www.youtube.com/watch?v=-S0ynsaLx88u0026t=288s

Verkun villibráðar – Rjúpa

1. Undirbúningur eftir veiði

  • Vinsælt er að láta þær hanga en gerið það á köldum og þurrum stað. Hversu lengi þær eiga að hanga, á hausnum eða fótum eru trúarbrögð. Finndu næsta æðstaprest og fáðu ráð. Því fleiri ráð sem þú færð því fjölbreyttari verða þau….
    En mikilvægt að staðurinn sé þurr og kaldur
  • Haldið þeim á köldum stað (0–6 °C).
  • Gætið hreinlætis, forðist að magainnihald komist í kjöt.

2. Plokka eða flá

  • Plokkun: Hefðbundin aðferð → plokkað meðan fuglinn er heitur til að húðin haldist heil. Eða á Þorláksmessu.
  • Flá: Húðin fjarlægð → hentugt ef rjúpan er mikið skotin eða ætluð í pottrétti. Og ef steikja á bringur sem er vinsælast í dag

3. Hreinsun (innmatur)

  1. Gerið lítinn skurð á kviðinn.
  2. Fjarlægið innmat:
    • Hjarta, lifur og fóarn má nýta.
    • Gallblöðru þarf að forðast að skemma.
  3. Skolið létt með köldu vatni og þerrið fuglinn.

4. Vinnsla kjöts

  • Bringur: Verðmætasti hluti rjúpunnar → hægt að steikja eða reykja.
  • Heil rjúpa: Oft notuð í hefðbundnar jólasteikur.
  • Læri/vængir/fóarn: Henta vel í soð eða í blönduð villibráðarétti.

5. Geymsla

  • Kæli: 1–2 daga fersk.
  • Frysti: Best að fjarlægja bringur og frysta þær í loftþéttum poka.
  • Heilar rjúpur: Hægt að geyma frystar í allt að 12 mánuði eða 2 ár eða lengur. Geymsluþol rjúpunnar er lygilegt.

6. Matreiðsla

  • Hefðbundin jólarjúpa, steikt í ofni með villisveppasósu.
  • Léttsteiktar bringur. Vinsælar í dag – medium rear.
  • Reykt rjúpa.
  • Rjúpusoð eða súpa.
  • Rjúpubragð má milda með marineringu (t.d. í mjólk eða súrmjólk). En hver gerir það…