Frá haga í maga – fullnýting villibráðar
Kristbjörg Kamilla Sigtryggsdóttir er veiðikona sem trúir á fullnýtingu bráðar.
Hún heldur úti instagram síðau Www.instagram.com/frahagaimaga og líka Facebook síðu (frá haga í maga) þar sem hún birtir myndir af bráð og matreiðslu. Hún er sjálfmenntaður kokkur og myndirnar tala fyrir sig sjálfar.

„Dóttir mín hefur tekið fullan þàtt í verkun á villibráð og er þetta hennar annað ár sem hún hjálpar. Ég er með Bradley smoker þar sem ég kald reyki bringur með viskí við og sumar gref ég líka eftir reyk það er frábært og skemmtilegu tvist þar sem ég þurrka og dufta hrat af krækiberjum og bláberjum eftir að ég hef saftað og nota duftið í grafblöndu ásamt viltu kúmeni sem ég tíni á Suðurnesjum.

„Lifur og hjörtu nýti ég síðan í paté og frysti í hæfilegum pakkningum. Það er dásamlegt að eiga reykt og grafið kjöt fyrir hátíðarnar og gott paté.“

„Eitt sem er frábært er að rista þunnar baguette með filippo Berio hvítlauks olíu , smyrja síðan með paté , skera sneið af reyktri eða grafnri gæsa bringu , smá rucola og berjasultu yfir. Þarna getur maður notið þess í góðum munnbita allt sem maður hefur sótt í náttúruna og hanterað sjálfur.“

„Sé síðan næg innanmör í fuglunum þá er frábært að safna henni og sjóða hana niður og sigta. Úr henni er hægt að búa til gæsa læra confit. Það er hægt að bragðbæta þá olíu með allskyns kryddum sem til eru í íslenskri náttúru og nýta til steikingar a kjöti og grænmeti“
„Hálsinn er síðan nýttur líka og fer hann í að búa til góða villibráða sósu.“

„Með þessu ertu að nýta bráðina vel og einsog þú segir minkar kolefnissporin töluvert.“
„Við mæðgur reykjum líka allt hangikjöt í kofa, fyrir 3 árum ef ég man rétt kom félagi minn með hreindyrahjörtu og prófuðum við að tvíreykja þau með tapi og íslensku birki það kom svakalega vel út. Skorið niður í þunnar sneiðar einsog carpacci“

Hér er smá kynningarmyndband um síðuna hennar

Verkun á önd
https://www.facebook.com/share/r/1748tWq3RF/?mibextid=wwXIfr
