MEÐFERÐ OG VERKUN VILLIBRÁÐAR

Þessi kafli ætti eiginlega að heita í höfuðið á Sigmari B. Haukssyni fyrrum formanni SKOTVÍS. Sigmar var mikill matgæðingur og áhugamaður um gjörnýtingu villibráðar.

Silli kokkur er kannski sá aðili sem hefur nýtt villibráð og sýnt meðhöndlun hennar áhuga. Hann hefur sett myndbönd á youtube þar sem hann kennir aðgerð og nýtingu bráðar. Myndböndin birtast hér með hans leyfi og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.

Kristbjörg Kamilla Sigtryggsdóttir heldur úti Facebook síðu sem heitir Frá haga í maga. Við fengum góðfúslegt leyfi til að birta hérna efni frá henni.