VERKUN Á RJÚPU
Silli kokkur er kannski sá aðili sem hefur nýtt villibráð og sýnt meðhöndlun hennar áhuga. Hann hefur sett myndbönd á youtube þar sem hann kennir aðgerð og nýtingu bráðar. Myndböndin birtast hér með hans leyfi og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.
https://www.youtube.com/watch?v=-S0ynsaLx88u0026t=288s
Verkun villibráðar – Rjúpa
1. Undirbúningur eftir veiði
- Vinsælt er að láta þær hanga en gerið það á köldum og þurrum stað. Hversu lengi þær eiga að hanga, á hausnum eða fótum eru trúarbrögð. Finndu næsta æðstaprest og fáðu ráð. Því fleiri ráð sem þú færð því fjölbreyttari verða þau….
En mikilvægt að staðurinn sé þurr og kaldur - Haldið þeim á köldum stað (0–6 °C).
- Gætið hreinlætis, forðist að magainnihald komist í kjöt.
2. Plokka eða flá
- Plokkun: Hefðbundin aðferð → plokkað meðan fuglinn er heitur til að húðin haldist heil. Eða á Þorláksmessu.
- Flá: Húðin fjarlægð → hentugt ef rjúpan er mikið skotin eða ætluð í pottrétti. Og ef steikja á bringur sem er vinsælast í dag
3. Hreinsun (innmatur)
- Gerið lítinn skurð á kviðinn.
- Fjarlægið innmat:
- Hjarta, lifur og fóarn má nýta.
- Gallblöðru þarf að forðast að skemma.
- Skolið létt með köldu vatni og þerrið fuglinn.
4. Vinnsla kjöts
- Bringur: Verðmætasti hluti rjúpunnar → hægt að steikja eða reykja.
- Heil rjúpa: Oft notuð í hefðbundnar jólasteikur.
- Læri/vængir/fóarn: Henta vel í soð eða í blönduð villibráðarétti.
5. Geymsla
- Kæli: 1–2 daga fersk.
- Frysti: Best að fjarlægja bringur og frysta þær í loftþéttum poka.
- Heilar rjúpur: Hægt að geyma frystar í allt að 12 mánuði eða 2 ár eða lengur. Geymsluþol rjúpunnar er lygilegt.
6. Matreiðsla
- Hefðbundin jólarjúpa, steikt í ofni með villisveppasósu.
- Léttsteiktar bringur. Vinsælar í dag – medium rear.
- Reykt rjúpa.
- Rjúpusoð eða súpa.
- Rjúpubragð má milda með marineringu (t.d. í mjólk eða súrmjólk). En hver gerir það…
