ÖRYGGI Á VEIÐISLÓÐ

HALDA MEÐ BÁÐUM HÖNDUM –
Besta og öruggasta leiðin, hefur fulla stjórn á hlaupinu og beinir því í örugga átt. Heldur um skeftið með annari og lætur hlaupið hvíla á hinum framhandleggnum. Ef bráð kemur skyndilega ertu líka fljótastur að ná miði með þessari aðferð.

Á ÖXLINNI –
Hentugt þegar þú ert með einhleypu eða tvíhleypu, byssan er alveg opin og örugg. Ef bysan er lokuð og hlaðin vertu þá alveg viss um að engin sé fyrir aftan þig.

MEÐ EINNI HENDI –
Ef engin er fyrir framan þig getur þú haldið svona á byssu. Óhentugt því þú hefur ekki mikla stjórn á hlaupinu og alltaf hætta á að reka hlaupið oafn í jörðina og fá aðskotahluti inn í hlaupið.

VÖGGUGRIP –
Mjög þægileg staða, ef annar veiðimaður er við hlið þér þá skal hlaupið beinast frá honum að sjálfsögðu.

BYSSUÓL –
Mjög gott að nota byssuólina þegar þú ert að ganga á veiðislóð og veiði ekki byrjuð. Haltu með annari hendinni um ólina fyrir meira öryggi.

OLNBOGI –
Góð staða þegar þú ert í hvíld með einhleypu eða tvíhleypu. Lásinn er opinn og mikið öryggi.