Þrenging, (e. choke) leitast við að halda betur utan um haglavöndulinn og stýra dreifingu hans þegar hann fer fram úr hlaupinu. Eldri gerðir af haglabyssum eru ekki með skiptanlegar þrengingar, heldur er hlaupið steypt í ákveðið mót. Skiptanlegar þrengingar veita veiðimanni þann möguleika að nota sömu haglabyssu við mismunandi aðstæður, eða við mismunandi bráð eða æfingar. Leiðbeiningar um hvernig á að skipta um þrengingu í þínu vopni er að finna frá framleiðanda þess. Yfirleitt eru þær þó skrúfaðar með sérstöku verkfæri, í sæti fremst í hlaupinu.
Dýpt hagladreifinnar er form hennar á leið að skotmarki, séð á hlið. Ímyndaðu þér að þú gætir tekið mynd af hagladreifinni um leið og hún yfirgefur hlaupið, þannig að myndin sýni fremsta hagl að því aftasta. Þegar höglin yfirgefa hlaupið hefur andrúmsloftið strax áhrif á dreifingu þeirra, bæði til hliðar, og hraða þeirra. Því víðari sem dreifin er, því minni slagkraftur er í henni og því ólíklegri til að fella bráð á lengri vegalengdum. Víðari dreif hentar þó betur á styttri færum. Með notkun á þrengingum getur þú stjórnað þessari dreif út frá þeim aðstæðum sem þú ert að veiða við.
Bretar skilgreina þrengingar á einfaldan hátt, full þrenging, 3/4 þrenging, 1/2 þrenging, 1/4 þrenging og svo að endingu óþrengd byssa. Bandaríkjamenn fóru aðra leið, og höfum við að mestu stuðst við þá leið.
Þetta er þrengsta þrengingin, og skilar þéttastri dreif hagla. Hér haldast höglin þétt saman yfir lengri vegalengdir. Því hentar þessi þrenging betur fyrir skot á lengri færum, í kringum 40 metra eða yfir.
Aðeins víðari þrenging en full og hentar best til að nota á milli vegalengdir, eða milli 30 og 40 metra.
Þessi þrenging er lítið að stýra dreifinni og hentar best fyrir færi milli 20 og 30 metra.
Aðrar gerðir:
Í Evrópu var svo reynt að koma fram með enn eina skilgreininguna. Sú hefur ekki náð vinsældum hér. Þessi skilgreining byggir á stjörnumerkingum, þar er full þrenging táknuð með *, 3/4 þrenging með **, 1/2 þrenging með ***, 1/4 þrenging táknuð með ****. Óþrengd byssa er táknuð með stöfunum CL
Skeet þrenging er sérstaklega merkt með SK eða *****, fimm stjörnum.
Á veiðum, burtséð frá hvaða þrenging er notuð, er hámarksskotfæri með haglabyssu til að deyða bráð talið vera 30 metrar.
Mismunandi ákoma með mismunandi þrengingum:
Eins og komið hefur fram í þessum kafla er það megin tilgangur þrenginga að stýra dreifingu haglanna og tryggja ákveðna ákomu miðað við lengd að skotmarki. Ákoman er mæld með því að skoða hlutfallslega ákomu hagla innan hrings sem er 75 sentimetrar í þvermál, á 35 metra færi. Þá eiga þrengingar að gefa þessa niðurstöðu:
Hér er hægt að lesa sér til um þrengingar.