VEIÐISLYS OG ORSÖK ÞEIRRA
Eitt slys á veiðum er einu slysi of mikið.
Hér fyrir neðan er upptalning á helstu orsökum veiðislysa.
- Ekki gætt að því sem er fyrir aftan bráðina.
- Vera með fingur á gikk áður en þú ert tilbúin að skjóta.
- Halda að vopnið sé óhlaðið og meðhöndla það óvarlega.
- Detta eða hrasa með hlaðið vopn.
- Halda að vopnið sé óhlaðið þegar farið er yfir girðingu.
- Hoppa yfir torfæru eða læk.
- Flytja hlaðið vopn á vélknúnu farartæki.
- Sveifla hlaupinu út fyrir veiðisvæði þitt og inná öryggisvæði veiðifélagans.
Þegar þú veiðir með öðrum þá er alltaf hætta á slysaskotum.
Snúðu þér beint fram og settu hendur þínar út í 45 gráður frá líkamanum. Þú finnur rétta stöðu með því að horfa beint fram, setja hendur í axlarhæð til hliðar og færa þær svo hægt fram þar til þú ferð að sjá þær með hliðarsjón þinni. Stoppaðu handahreyfinguna þar. Svæðið sem þú sérð núna fyrir framan þig á milli handleggja er þitt veiðisvæði.
Ef þú ferð með hlaupið úfyrir þetta svæði ertu að skjóta fyrir utan þitt öryggissvæði og veiðifélagar þínir eru í hættu.
