RÁÐANDI AUGA
Að vita hvort augað er ráðandi er mikilvægt þegar þú ætlar að hitta eitthvað. Ráðandi auga sér beint á skotmarkið en hitt með smá halla.
Afleiðingin er skekkja á dýptarsviði. Skotvopni skal ávalt miða frá þeirri öxl sem ráðandi augað er.
Hvernig ferðu að því að vita þetta?
- Gerðu lítinn þríhyrning með höndunum
- Réttu hendurnar beint út í átt að skotmarki.
- Horfðu í gegn um þríhyrninginn í átt að skotmarkinu
- Hafðu bæði augun opin
- Færðu nú hendurnar til baka en horfðu alltaf á skotmarkið í gegnum þríhyrninginn
- Það auga sem hendurnar færast að er þitt ráðandi auga.
